---
title: "Allra síðustu sýningar á Ávaxtakörfunni"
url: https://www.leikfelag550.is/greinar/allra-sidustu-syningar-a-avaxtakorfunni
type: grein
locale: is
published: 2024-10-28
updated: 2026-09-30
source: ehf
---

**Nú fer hver að verða síðastur að sjá Ávaxtakörfuna hjá LS í Bifröst því síðustu tvær sýningar verða þriðjudaginn 29. okt. kl 18:00 og miðvikudaginn 30. okt. kl 18:00. Að sögn formanns leikfélagsins, Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur, hefur tímabilið verið gott, leikritið vel sótt og engin óvænt forföll hjá leikurum.**

„Fyrir hönd leikfélagsins vil ég koma þökkum til allra sem hafa komið á sýningar hjá okkur, styrktaraðilum og allra sem hafa á einhvern hátt lagt hönd á plóg til að koma þessari frábæru sýningu á fjalirnar,“ segir formaðurinn og minnir á að hægt er að fylgjast með og sjá myndir og myndskeið á samfélagsmiðlum Leikfélagsins.

Miðasala á  [Tix.is](https://tix.is/event/18366/avaxtakarfan-leikfelag-sau-arkroks-i-bifrost?fbclid=IwY2xjawGMXPhleHRuA2FlbQIxMAABHbM8ISL4LOvc6lPwNXS7flvdGTAutSSRFpAf_oyXjEGz2LbqLwOhcEOelA_aem_MaxI8nfbmZ4b83PXTbWyTw) og í síma \[símanúmer á síðunni\]

Tengiliðaupplýsingar eru á síðunni: https://www.leikfelag550.is/greinar/allra-sidustu-syningar-a-avaxtakorfunni