---
title: "Blái hnötturinn: Miðasalan er hafin!"
url: https://www.leikfelag550.is/greinar/blai-hnotturinn-midasalan-er-hafin
type: grein
locale: is
published: 2026-10-12
updated: 2026-10-12
source: ehf
---

*Frumsýning er 16. október*

Miðasala er hafin á Bláa hnöttin og fer hún fram á heimasíðu Leikfélags Sauðárkróks. Ólafur Jens Sigurðsson leikstýrir Bláa hnettinum og hefur unnið hörðum höndum með leikurum og starfsfólki við að setja upp frábæra sýningu. Hafið hraðar og pantið ykkur miða!

Blái hnötturinn er skemmtilegt ævintýri sem gerist á fjarlægum hnetti þar sem börn ráða ríkjum, leika sér allan daginn og verða aldrei fullorðin. Líf barnanna tekur þó óvænta stefnu þegar maður að nafni Gleði-Glaumur lendir geimskipi sínu á Bláa hnettinum og býður börnunum ýmsa ótrúlega hluti sem virðast of góðir til að vera sannir. Brátt uppgötva börnin að gleðin sem Gleði-Glaumur býður þeim kostar sitt og að ákvarðanir þeirra geta haft alvarleg áhrif á líf þeirra. Blái hnötturinn er spennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna sem er fullur af húmor, réttlæti, vináttu og gleði.

- [Blái hnötturinn - Frumsýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-frumsyning) - 16.10.2026 kl. 18:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 2. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-2-syning) - 18.10.2026 kl. 14:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 3. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-3-syning) - 19.10.2026 kl. 18:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 4. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-4-syning) - 20.10.2026 kl. 18:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 5. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-5-syning) - 21.10.2026 kl. 18:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 6. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-6-syning) - 23.10.2026 kl. 18:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 7. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-7-syning) - 24.10.2026 kl. 14:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 8. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-8-syning) - 25.10.2026 kl. 14:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 9. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-9-syning) - 25.10.2026 kl. 17:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 10. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-10-syning) - 27.10.2026 kl. 18:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 11. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-11-syning) - 28.10.2026 kl. 18:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 12. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-12-syning) - 01.11.2026 kl. 14:00, Bifröst, Sauðárkróki
- [Blái hnötturinn - 13. sýning](https://www.leikfelag550.is/midar/blai-hnotturinn-13-syning) - 01.11.2026 kl. 17:00, Bifröst, Sauðárkróki
