---
title: "Húsfyllir á frumsýningu"
url: https://www.leikfelag550.is/greinar/husfyllir-a-frumsyningu
type: grein
locale: is
published: 2025-04-27
updated: 2026-09-30
source: ehf
---

**Það má sannarlega segja að gestir hafi skemmt sér vel á frumsýningu í Bifröst í kvöld er frábær leikhópur LS fór á kostum í leikritinu Flæktur í netinu eftir Ray Cooney. Ekki er miklu logið þó fullyrt sé að áhorfendur hafi hlegið stanslaust í þær tvær stundir sem sýningin tók.**

Óhætt er að hvetja alla til að létta lundina og panta miða á TIX, en þar fer miðasala fram en næstu sýningar eru sem hér segir:

2.  _sýning; þriðjudaginn 29. apríl kl. 20_
3.  _sýning; miðvikudaginn 30. apríl kl. 20_
4.  _sýning; föstudaginn 2. maí kl. 20_
5.  _sýning; laugardaginn 3. maí kl. 15_
6.  _sýning; sunnudaginn 4. maí kl. 20_
7.  _sýning; þriðjudaginn 6. maí kl. 20_
8.  _sýning; miðvikudaginn 7. maí kl. 20_

Athugið! Miðasala fer einungis fram á **[TIX.is](https://tix.is/event/19465/flaektur-i-netinu-leikfelag-saudarkroks-i-bifrost)**