---
title: "Leikarar óskast"
url: https://www.leikfelag550.is/greinar/leikarar-oskast
type: grein
locale: is
published: 2024-06-17
updated: 2026-09-30
source: ehf
---

**Í tilkynningu sem barst Leikfélaginu er leitast eftir leikurum á allskonar aldri í tökur um miðjan júlí sem verður tekin upp að hluta til á Sauðárkróki. Þeir sem hafa áhuga á að sækja um mega senda beint á Reyni Skarp á netfangið \[netfang á síðunni\] ásamt fullu nafni, aldri og nýlegri ljósmynd.**

Myndin á að höfða til barna og ungmenna og er umhverfi sögunnar Hafnarfjörður, þar sem ævintýraheimur íslensku þjóðsagnanna er í forgrunni. Áætlað er að tökur fari fram seinni hluta júlímánaðar. Leitað er að 6-12 ára stúlku í aðalhlutverk en í aukahlutverk vantar 6-12 ára dreng, 30-40 ára konu og 60+ af öllum kynjum.

Tengiliðaupplýsingar eru á síðunni: https://www.leikfelag550.is/greinar/leikarar-oskast