---
title: "Leikfélag Sauðárkróks heldur leiklistarnámskeið fyrir börn"
url: https://www.leikfelag550.is/greinar/leikfelag-saudarkroks-heldur-leiklistarnamskeid-fyrir-born
type: grein
locale: is
published: 2026-08-07
updated: 2026-09-30
source: ehf
---

**Leikfélag Sauðárkróks verður með skemmtilegt leiklistarnámskeið fyrir börn dagana 28. og 29. ágúst næstkomandi. Námskeiðið er ætlað börnum fæddum árunum 2011 til 2017 sem hafa áhuga á leiklist, leikjum og sköpun.**

Þetta er frábært tækifæri fyrir krakka til að kynnast töfrum leiklistarinnar, styrkja sjálfstraustið og eignast nýja vini áður en vetrarstarfið fer af stað. Athugið að takmarkað pláss er í boði. Nánari upplýsingar um skráningu, tímasetningar og kennara verða auglýstar síðar hér á síðunni og á samfélagsmiðlum félagsins.

Fylgist með á [Facebook](https://www.facebook.com/leikfelagsaudarkroks) og á [Instagram](https://www.instagram.com/leikfelagsaudarkroks/) -reikningum Leikfélagsins

Við hlökkum til að sjá ykkur!

/PF