---
title: "Leiklistarnámskeið fyrir börn"
url: https://www.leikfelag550.is/greinar/leiklistarnamskeidi-fyrir-born
type: grein
locale: is
published: 2025-07-24
updated: 2026-09-30
source: ehf
---

**Leikfélag Sauðárkróks stendur fyrir leiklistarnámskeiði fyrir börn fædd 2011-2016 dagana 11. - 12. ágúst. Möguleiki er á hlutverki í haustsýningu Leikfélagsins fyrir áhugasama þátttakendur að námskeiði loknu.**

Námskeiðið verður haldið í Árskóla og verður tímasetning auglýst þegar nær dregur.

Námskeiðsgjald er 5.000 kr. og lýkur skráningu á miðnætti 4. ágúst.

Skráning fer fram [hér:](https://docs.google.com/forms/u/0/d/e/1FAIpQLSed7wT9oOCa8GPlDtrIb0-S96kBN039L5n7PL6pkEmf8dUlpw/viewform?usp=send_form&pli=1)