---
title: "Skráning á Leiklistarnámskeið LS"
url: https://www.leikfelag550.is/greinar/skraning-a-leiklistarnamskeid-ls
type: grein
locale: is
published: 2026-08-11
updated: 2026-09-30
source: ehf
---

Þetta er frábært tækifæri fyrir krakka til að kynnast töfrum leiklistarinnar, styrkja sjálfstraustið og eignast nýja vini áður en vetrarstarfið fer af stað. Athugið að takmarkað pláss er í boði. Nánari upplýsingar um staðsetnigu og námkvæma tímasetningu verða birtar fyrir þá sem skrá sig á námskeiðið. 

Skráning hefst í dag, miðvikudag 12. ágúst og lýkur mánudaginn 24. ágúst. Ef námskeiðið fyllist lýkur skráningu fyrr og verður þá það auglýst sérstaklega hér á heimasíðu og samfélagsmiðlum.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er leikstjóri haustsins hjá okkur, _Ólafur Jens Sigurðsson_

Möguleiki er á hlutverki í haustsýningu LS fyrir áhugasama þátttakendur að námskeiði loknu. Verkefnið sem við stefnum á að setja upp í haust er _Blái hnötturinn_.

Skráning hér: [https://forms.gle/HijU8E2zdVbf63F47](https://forms.gle/HijU8E2zdVbf63F47) 

/KRK