Skilmálar miðasölu
Útgáfa 2. Gildir frá 11.10.2026.
Þessir skilmálar gilda um kaup á miðum og skráningu á viðburði á þessum vef. Þegar þú hakar við samþykki í kaupferlinu staðfestir þú að þú hafir lesið skilmálana og samþykkir þá.
Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna okkar.
1. Seljandi
Leikfélag Sauðárkróks
Kennitala: 420269-5289
Heimilisfang: Borgarflöt 19d, 550 Sauðárkrókur
Netfang: leikfelag@outlook.com
Seljandi er ekki skráður á virðisaukaskattsskrá.
2. Miðar og verð
Verð hvers miða kemur fram á kaupsíðu viðburðarins. Verðið er í íslenskum krónum og er endanlegt verð. Engin bókunar- eða þjónustugjöld bætast við.
Enginn virðisaukaskattur er innheimtur af miðunum.
Barnamiði gildir fyrir börn til og með 16 ára aldri.
Öll börn þurfa miða, líka þau sem sitja í fangi fullorðinna.
Hver miði veitir einum gesti aðgang að þeim viðburði sem miðinn er keyptur á.
Á netinu er hægt að kaupa mest 20 miða af hverri miðategund í einni pöntun. Hópar sem þurfa fleiri miða hafa samband við okkur.
Komi í ljós augljós villa í verði eða upplýsingum á kaupsíðu getum við fellt kaupin niður og endurgreitt miðana að fullu.
3. Kaup og greiðsla
Þú velur viðburð og fjölda miða og skráir nafn, netfang og aðrar upplýsingar sem beðið er um. Þú getur breytt valinu og leiðrétt upplýsingar þar til þú ýtir á greiðsluhnappinn.
Þegar þú ýtir á greiðsluhnappinn flyst þú á örugga greiðslusíðu greiðslumiðlunarinnar og greiðir þar. Greitt er í íslenskum krónum.
Greiðsluupplýsingar eru slegnar inn á greiðslusíðu greiðslumiðlunarinnar. Þær fara aldrei um þennan vef og við sjáum hvorki né geymum kortanúmerið þitt.
Kaupin eru bindandi þegar greiðslan hefur verið staðfest.
Miðarnir eru teknir frá fyrir þig í 15 mínútur meðan þú lýkur greiðslu. Eftir það geta þeir farið aftur í sölu.
Samningurinn er gerður á íslensku. Pöntunin er geymd í miðasölukerfinu og þú færð kvittun í tölvupósti. Hlekkurinn í póstinum opnar kvittunina og miðana hvenær sem er.
4. Afhending miða
Um leið og greiðslan er staðfest birtast miðarnir á skjánum og eru sendir á netfangið sem þú gafst upp, ásamt kvittun. Hverjum miða fylgir QR-kóði.
Miðar eru aðeins afhentir rafrænt. Enginn sendingarkostnaður er innheimtur.
Berist pósturinn ekki innan nokkurra mínútna skaltu líta í ruslpóstmöppuna. Finnist hann ekki þar skaltu hafa samband við okkur og við sendum miðana aftur.
Sýndu QR-kóðann við innganginn, í síma eða útprentaðan.
Þú berð ábyrgð á að netfangið sé rétt skráð og að miðarnir komist ekki í hendur annarra.
Við áskiljum okkur rétt til að senda þér áminningu í tölvupósti um fyrir viðburð.
5. Enginn 14 daga réttur til að falla frá kaupum
Miði á viðburð er þjónusta sem veitt er á tilteknum degi. Samkvæmt l-lið 18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga á neytandi því ekki rétt til að falla frá kaupunum innan 14 daga, eins og annars gildir um kaup á netinu. Um afbókun og endurgreiðslu gilda eingöngu 6. og 7. kafli þessara skilmála.
6. Afbókun og endurgreiðsla að ósk kaupanda
Seldir miðar fást ekki endurgreiddir nema viðburður falli niður eða honum sé frestað, sjá 7. kafla.
Endurgreiðsla fer alltaf á sama greiðslukort og greitt var með. Það getur tekið nokkra virka daga þar til hún sést á kortinu.
Komist þú ekki á viðburð vegna veikinda eða annarra forfalla getur þú haft samband við okkur. Við metum hvert tilvik en getum ekki lofað endurgreiðslu eða miða á annan viðburð.
Þú mátt láta annan gest nota miðann þinn. Óheimilt er að endurselja miða á hærra verði en hann var keyptur á.
7. Ef viðburður fellur niður eða honum er frestað
Falli viðburður niður getur þú valið um fulla endurgreiðslu á sama greiðslukort eða miða á annan viðburð. Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá því að þú lætur okkur vita.
Verði viðburði frestað eða hann færður á annan tíma gildir miðinn á nýja tímann. Henti nýi tíminn ekki getur þú óskað eftir fullri endurgreiðslu innan 14 daga frá tilkynningu.
Við látum vita með tölvupósti á netfangið sem skráð er á pöntunina.
Við endurgreiðum miðaverðið en bætum ekki annan kostnað, svo sem ferða- eða gistikostnað.
Breytingar á dagskrá, flytjendum eða aðrar minni háttar breytingar á viðburði veita ekki rétt til endurgreiðslu.
8. Á viðburðardegi
Staðsetning og tími koma fram á kaupsíðu viðburðarins og á miðanum.
Hvenær húsið opnar kemur fram á kaupsíðu viðburðarins.
Gestum sem koma eftir að viðburður hefst er hleypt inn þegar það truflar ekki aðra gesti.
9. Aðgengi
Hjólastólastæði eru bókuð með sérstakri miðategund á kaupsíðu viðburðarins þegar þau eru í boði.
Fylgdarmaður gests í hjólastól þarf að kaupa miða.
Hafðu samband við okkur ef þú hefur aðrar þarfir vegna aðgengis og við gerum okkar besta til að mæta þeim.
10. Kvartanir og ágreiningur
Hafðu fyrst samband við okkur á leikfelag@outlook.com. Við svörum eins fljótt og við getum.
Náist ekki sátt getur neytandi leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, sjá kvth.is.
Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi dómsmál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra.
11. Breytingar á skilmálum
Við getum breytt þessum skilmálum. Um hver kaup gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar kaupin fóru fram. Nýjasta útgáfan er alltaf á þessari síðu og dagsetningin efst sýnir frá hvaða degi hún gildir.