Frumsýning á föstudaginn

Nú er komið að stóru stundinni. Frumsýning á vorleikriti LS Á sama tíma að ári verðuir föstudaginn 17. apríl. Miðapantanir í síma 849 9434.

Eitt febrúarkvöld árið 1951 hittast Jón og Gunna fyrir tilviljun á hóteli og verja nóttinni saman. Þetta kvöld kviknar neistinn. Stundum þarf ekki nema eina nótt - en stundum er ein nótt ekki nóg. Því endurtekur sagan sig, ár eftir ár eftir ár. Á þessum árvissu fundum finnum við fyrir umróti sögunnar; kvenfrelsisbaráttunni, hippatímanum, Víetnamstríðinu og því hvernig viðhorf þeirra til lífsins breytast. Og lokauppgjörið nálgast!
Höfundur er Bernard Slade en Karl Ágúst Úlfsson þýddi verkið.
Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir

Miðasala í síma 849-9434

Fyrstu sýningar eru eftirfarandi:

Frumsýning föstudaginn 17. apríl kl. 20
2. sýning sunnudaginn 19. apríl kl 18
3. sýning mánudaginn 20. apríl kl 20
4. sýning þriðjudaginn 21. apríl kl 20
5. sýning fimmtudaginn 23. apríl kl 20