Aðalfundur LS var haldinn þann 7. júní 2026 í Leikborg, aðstöðu félagsins við Borgarflöt 19d. Fámennt var á fundinum en góðmennt. Sem fyrr var starfsemi félagsins fjölbreytt á starfsárinu og rekstur þess gekk afar vel. Viðhöfð voru venjuleg aðalfundarstörf og kjörinn fundarstjóri var Guðbrandur J. Guðbrandsson.
Í yfirferð formanns, Sögu Sjafnar Ragnarsdóttur, í skýrslu leikárs kom þetta fram:
Leikfélagið tók þátt á 17. júní hátíðinni og var með atriði samkvæmt samningi. Palli Friðriks var kynnir.
Í ágúst hélt LS leiklistarnámskeið fyrir 8-16 ára sem var mjög vel sótt og flestir krakkanna mættu svo á fyrsta fund haustverksins, Óvitar. Sigurlaug Vordís kenndi ásamt aðstoðarkonum Fanney og Kristey. Eystein Ívar var ráðinn til að leikstýra leikritinu Óvitar og var það sýnt alls 13 sinnum. Frumsýnt var 10. október og sáu um 1100 manns stykkið.
Næsta verkefni var jólatrésskemmtun og tendrun jólatrésins þann 28. nóvember. Þar mættu Grýla og Leppalúði ásamt krökkum úr leikhópi Óvita sem tóku svo lagið. Palli Friðriks var kynnir.
Leikfélagið fór svo á bókasafnið fjórum sinnum og las bækur fyrir börn, bæði sem ákveðnir karakterar og svo sem þau sjálf.
Næsta verkefni var vorstykkið sem var Á sama tíma að ári. Ingrid Jónsdóttir leikstýrði. Sýndar voru 10 sýningar og um 700 manns komu á sýningu. Frumsýnt var 17. apríl.
Einnig fékk leikfélagið styrk [frá sveitarfélaginu]sem nýttur var til kaups á hljóð og ljósabúnaði, hljóðbúnaðurinn var kominn fyrir sýningar á Óvitum og settu félagar í leikfélaginu ásamt Sigfúsi Arnari upp búnaðinn. Ljósabúnaðurinn kom eftir sýningar á Á sama tíma að ári.
Leikfélagið valdi einnig einn fulltrúa frá sér til að vera í matsnefnd fyrir nýtt menningarhús á Sauðárkróki og aðstoðaði við hönnun leikhúspart hússins. Saga Sjöfn var fulltrúi LS.
Í ársreikningum kom fram að hagnaður varð á rekstri félagsins upp á tæpar tvær og hálfa milljón, sem er talsvert hærri upphæð en árið áður en þá var hagnaður rúmar sjöhundruð þúsund krónur. Má rekja þennan ágóða til tekna á Óvitum sem var afar vel sótt.
Kosið var til stjórnar og er eftirfarandi:
Formaður: Saga Sjöfn Ragnarsdóttir.
Varaformaður: Árni Jónsson.
Gjaldkeri: Páll Friðriksson.
Ritari: Fanney Rós Konráðsdóttir (Kemur í stað Inga Sigþórs).
Meðstjórnandi: Guðbrandur J. Guðbrandsson.
Varastjórn:
Hjörtur Gunnarsson, Steinn Gunnar Runólfsson og Kristey Rut Konráðsdóttir.
Búningaverðir:
Sigurveig Dögg Þormóðsdóttir.
Guðrún Ósk Hrafnsdóttir.
Leikmunavörður:
Saga Sjöfn Ragnarsdóttir.
Skoðunarmenn reikninga:
Eysteinn Ívar Guðbrandsson.
Herdís María Sigurðardóttir.
Tæknistjóri:
Ingi Sigþór Gunnarsson.
Húsnefnd Borgarflöt 19d:
Saga Sjöfn Ragnarsdóttir.
Húsvörður:
Steinn Gunnar Runólfsson.
Ákveðið var að árgjald yrði kr. 2.000.