Leikfélag Sauðárkróks verður með skemmtilegt leiklistarnámskeið fyrir börn dagana 28. og 29. ágúst næstkomandi. Námskeiðið er ætlað börnum fæddum árunum 2011 til 2017 sem hafa áhuga á leiklist, leikjum og sköpun.
Þetta er frábært tækifæri fyrir krakka til að kynnast töfrum leiklistarinnar, styrkja sjálfstraustið og eignast nýja vini áður en vetrarstarfið fer af stað. Athugið að takmarkað pláss er í boði. Nánari upplýsingar um skráningu, tímasetningar og kennara verða auglýstar síðar hér á síðunni og á samfélagsmiðlum félagsins.
Fylgist með á Facebook og á Instagram -reikningum Leikfélagsins
Við hlökkum til að sjá ykkur!
/PF