Saga Sjöfn Ragnarsdóttir nýr formaður LS

Saga Sjöfn, nýr formaður LS og SIgurlaug Dóra, fráfarandi formaður. Mynd: Kristín Björg.
Saga Sjöfn, nýr formaður LS og SIgurlaug Dóra, fráfarandi formaður. Mynd: Kristín Björg.

Aðalfundur Leikfélags Sauðárkróks var haldinn fimmtudagskvöldið 5. júní sl. í Leikborg, Borgarflöt 19D. Á dagsskrá voru venjuleg aðalfundastörf en helst bar til tíðinda að formannsskipti urðu á fundinum þar sem Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir lét af störfum eftir langa og farsæla formannssetu.

„Eftir 20 ára setu í stjórn LS þar af 16 ár sem formaður félagsins var komið að kaflaskilum hjá mér og gaf ég ekki kost á mér til áframhaldandi starfa sem formaður LS. 
Ég óska nýjum formanni Sögu Sjöfn til hamingju með kosninguna sem og nýrri stjórn.

Eftir svona langan tíma eru vissulega smá blendnar tilfinngar en fyrst og fremst þakklæti og gleði fyrir að fá að sinna þessu starfi hjá jafn frábæru félagi og LS er og einnig traustið sem mér hefur verið sýnt að fá að sinna þessu starfi í svo langan tíma.

Einnig þakklæti til allra sem ég hef starfað með öll þessi ári. Í þessu starfi hef ég kynnst svo frábæru fólki og eignast marga af mínum bestu vinum. Starfið hefur verið lærdómsríkt og skemmtilegt en jafnframt krefjandi,“ skrifar Sigurlaug Dóra á FB síðu sína  þar sem hún þakkar fyrir sig.

LS þakkar Sigurlaugu Dóru, sem reyndar er alltaf kölluð Lulla, kærlega fyrir hennar mikla og óeigingjarna starf í þágu leiklistar í Skagafirði og óskar henni velfarnaðar á öðrum vetvangi á nýjum slóðum í öðru héraði.

Ný stjórn LS er skipuð eftirfarandi:

- Formaður: Saga Sjöfn Ragnarsdóttir
- Varaformaður: Árni Jónsson
- Gjaldkeri: Páll Friðriksson
- Ritari: Ingi Sigþór Gunnarsson
- Meðstjórnandi: Guðbrandur J. Guðbrandsson
- Varastjórn: Hjörtur Gunnarsson, Fanney Rós Konráðsdóttir og Kristey Rut Konráðsdóttir.

  • Starfsemi Leikfélagsins sl. leikár var með hefðbundnu sniði þar sem tvö leikrit voru sett á svið í Bifröst, annars vegar Litla hryllingsbúðin, að vori og hins vegar Ávaxtakarfan, að hausti. Þá hefur LS komið að dagskrá hátíðahalda á 17. júní og við tendrun jólaljósa í upphafi aðventu.

Segja má að félagið búi vel að mannauði þegar kemur að uppsetningu leikverka þó alltaf sé pláss fyrir fleiri hendur í hin ýmsu störf.