Sviðslistanámskeið Leikfélags Sauðárkróks

Sviðslistanámskeið LS hentar börnum á Sauðárkróki og í nágrenni sem hafa gaman af leik, söng, dansi og að koma fram á sviði. Í þetta sinn verður haldið 3 daga námskeið þar sem allur hópurinn vinnur saman að atriðum sem innihalda söng, dans og leik sem sýnd verða á 17. júní hátíðinni á Sauðárkróki. Mikilvægt er að þau börn sem taka þátt á námskeiðinu komist alla þrjá dagana á námskeiðið. 

 

Mikilvægar upplýsingar:

Skráning - hefst 1. júní á heimasíðu LS kl. 13:00

(Ath. takmörkuð pláss í boði, fyrstur kemur, fyrstur fær)

Verð - 6000 kr.

Aldur - börn fædd 2013-2017

Tími - 15.-17. júní kl. 10:00-12:00

Sýning - 17. júní e.h., hluti af hátíðarhöldum