Fréttir

Skráning á Leiklistarnámskeið LS

Leikfélag Sauðárkróks verður með skemmtilegt leiklistarnámskeið fyrir börn dagana 28. og 29. ágúst næstkomandi. Námskeiðið er ætlað börnum fæddum árunum 2011 til 2017 sem hafa áhuga á leiklist, leikjum og sköpun.

Leikfélag Sauðárkróks heldur leiklistarnámskeið fyrir börn

Leikfélag Sauðárkróks verður með skemmtilegt leiklistarnámskeið fyrir börn dagana 28. og 29. ágúst næstkomandi. Námskeiðið er ætlað börnum fæddum árunum 2011 til 2017 sem hafa áhuga á leiklist, leikjum og sköpun.

Góður rekstur Leikfélagsins

Aðalfundur LS var haldinn þann 7. júní 2026 í Leikborg, aðstöðu félagsins við Borgarflöt 19d. Fámennt var á fundinum en góðmennt. Sem fyrr var starfsemi félagsins fjölbreytt á starfsárinu og rekstur þess gekk afar vel. Viðhöfð voru venjuleg aðalfundarstörf og kjörinn fundarstjóri var Guðbrandur J. Guðbrandsson.

Umsókn um skráningu á sviðslistanámskeið

Hér er að finna umsóknarblað á sviðslistanámskeið LS sem fram fer 15.-17. júní n.k.

Sviðslistanámskeið Leikfélags Sauðárkróks

15.-17. júní heldur Leikfélag Sauðárkróks sviðslistanámskeið fyrir börn fædd 2013-2017 ATH. Takmörkuð pláss í boði - fyrstur kemur, fyrstur fær Skráning hefst 1. júní

Frumsýning á föstudaginn

Nú er komið að stóru stundinni. Frumsýning á vorleikriti LS Á sama tíma að ári verðuir föstudaginn 17. apríl. Miðapantanir í síma 849 9434.

Menningarhús er góð fjárfesting

Á Sauðárkróki er stunduð öflug og lifandi leikhúsmenning þrátt fyrir að aðstaðan til að rækta hana að fullu hefur ekki haldið í við metnaðinn. Það er löngu tímabært að horfast í augu við þá staðreynd að hér á Króknum vantar menningarhús sem getur raunverulega sinnt leiksýningum, tónleikum og ýmsu öðru viðburðahaldi, hvert svo sem það er. Nú styttist í að ráðist verði í byggingu nýs menningarhúss við Safnahúsið á Flæðunum og er það fagnaðarefni.